Fimmtán taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer þann 26. janúar næstkomandi. Sitjandi þingmenn flokksins í kjördæminu bjóða sig allir fram.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst miðvikudaginn 2. janúar en hægt verður að kjósa bæði á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í Reykjavík og víða í kjördæminu.
Frambjóðendur í stafrófsröð:
- Árni Johnsen, alþingismaður, Vestmannaeyjum
- Ásmundur Friðriksson, f.v. bæjarstjóri, Garði
- Friðrik Sigurbjörnsson, nemi og varabæjarfulltrúi, Hveragerði
- Geir Jón Þórisson, f.v. yfirlögregluþjónn, Vestmannaeyjum
- Halldór Gunnarsson, f.v. sóknarprestur, Hvolsvelli
- Hulda Rós Sigurðardóttir, meistaranemi í opinberri stjórnsýslu, Höfn í Hornafirði
- Kjartan Þ. Ólafsson, f.v. alþingismaður, Ölfusi
- Magnús B. Jóhannesson, framkvæmdastjóri, Reykjanesbæ
- Magnús Ingberg Jónsson, atvinnurekandi, Selfossi
- Oddgeir Ágúst Ottesen, hagfræðingur, Hveragerði
- Ragnheiður Elín Árnadóttir, alþingismaður, Reykjanesbæ
- Reynir Þorsteinsson, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, Garði
- Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður, Hvolsvelli
- Vilhjálmur Árnason, lögreglumaður, Grindavík
- Þorsteinn M. Kristinsson, lögreglumaður og sveitarstjórnarmaður, Kirkjubæjarklaustri