Finnbogi leiðir Lýðræðisvaktina

Lýðræðisvaktin hefur staðfest sex efstu í suðurkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Efstur er Finnbogi Vikar, viðskiptalögfræðingur og sjómaður en Kristín Ósk Wiium, húsmóðir og nemi, skipar annað sætið.

Lýðræðisvaktin býður fram í öllum kjördæmum í kosningunum í vor.

1. Finnbogi Vikar, viðskiptalögfræðingur og sjómaður
2. Kristín Ósk Wiium, húsmóðir og nemi
3. Jón Gunnar Björgvinsson, flugstjóri
4. Sjöfn Rafnsdóttir, hrossabóndi
5. Þórir Baldursson, tónskáld
6. Hanna Guðrún Kristinsdóttir, sjúkraliði og kaupkona

Fyrri greinPétur ráðinn lánastjóri á Selfossi
Næsta greinTæpum 60 milljónum króna varið í átta verkefni