Fimm umsóknir bárust mennta- og barnamálaráðuneytinu um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu.
Umsóknarfresturinn rann út í síðustu viku en einn umsækjandi hefur dregið umsókn sína til baka. Hinir fjórir umsækjendurnir eru:
Ingileif S. Kristjánsdóttir, kennari
Jhordan Valencia Sandoval, öryggisvörður
Lárus Páll Pálsson, framkvæmdastjóri
Lind Draumland Völundardóttir, kennari
Skipað er í embættið til fimm ára í senn.