Fjölmenni á haustfundi á Þingborg

Ríflega eitthundrað gestir mættu á fyrsta haustfund Landssambands kúabænda sem haldinn var á Þingborg í Flóa í gærkvöldi.

Í framsögu fóru Sigurður Loftsson, formaður og Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri samtakanna yfir framleiðslu og sölumál mjólkur, sögulega aukningu á greiðslumarki og tillögur til breytinga á tilhögun reglugerðar um greiðslumark og viðskipti með það, tillögur að breytingum á verðhlutföllum fitu og próteins, starfsumhverfi mjólkurframleiðslunnar sem markað var í aðdraganda mjólkursamningsins 2004 og nýhafið starf við endurskoðun þess, stöðu nautakjötsframleiðslunnar og starf LK henni tengt undanfarin misseri, könnun á framleiðsluaðstöðu bænda, kynbótastarf í nautgriparækt og stefnu LK og SAM um fyrirmyndarbú.

Í umræðum rakti Einar Sigurðsson forstjóri Mjólkursamsölunnar úrskurð Samkeppniseftirlitsins og málatilbúnað félagsins gagnvart áfrýjunarnefnd samkeppnismála, auk þess sem Pálmi Vilhjálmsson framkvæmdastjóri framleiðslusviðs MS fór yfir ávinning af hagræðingaraðgerðum í mjólkuriðnaði á undanförnum árum.

Í frétt á vef Landsambands kúabænda segir að umræður bænda á fundinum hafi verið málefnalegar og yfirvegaðar. Ljóst er að undanfarna daga hafa vaknað ýmsar spurningar meðal bænda og út í samfélaginu, um þá umgjörð sem nautgriparæktinni hér á landi er búin. Fram kom vilji bænda til að standa vörð um afurðafélag sitt og treysta orðspor þess gagnvart neytendum hér á landi.

Fyrri greinAlmannavarnir: Lokið gluggum og hækkið hitann
Næsta greinÖflugur liðssigur hjá Selfyssingum