Fjórhjóli, verkfærum og fleiri lausamunum var stolið af sveitabæ í Flóahreppi einhvern tímann á bilinu 10.-13. maí.
Þjófnaðurinn átti sér stað einhvern tímann frá síðastliðnum sunnudegi til dagsins í gær.
Lögreglan á Suðurlandi hvetur þá sem verða varir við fjórhjólið eða hafa upplýsingar um málið til þess að hafa samband við lögreglu í síma 444 2000 eða í tölvupósti á sudurland@logreglan.is.