Fleira hékk á spýtunni en kannabisræktun

Eins og fram kom í fréttum í gærkvöldi voru karl og kona handtekinn á heimili sínu á Stokkseyri í gær. Aðdragandi aðgerðanna var sá, að ungur karlmaður leitaði til lögreglu skömmu eftir hádegi í gær og skýrði frá því að honum hefði verið haldið nauðugum í herbergi í íbúðarhúsi parsins á Stokkseyri og hann beittur ofbeldi og hótunum.

Lögregla greip þegar í stað til viðeigandi ráðstafana og fór á vettvang og handtók parið sem var flutt til yfirheyrslu á Selfossi. Tæknideild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi tæknirannsókn á vettvangi.

Við yfirheyrslur sakborninga, vitna og að teknu tilliti til niðurstöðu tæknirannsóknar tók rannsókn málsins nýja stefnu. Grunur vaknaði um að meintur brotaþoli hefði sagt ranglega frá frelsissviptingunni. Hann var handtekinn í framhaldinu og fékk réttarstöðu sakbornings og mun verða kærður fyrir rangar sakargiftir. Yfirheyrslum yfir honum mun væntanlega ljúka í dag.

Parið var látið laust í gærkvöldi eftir yfirheyrslur. Karlinn viðurkenndi að hafa staðið að kannabisræktun en 22 plöntur fundust í húsinu. Rannsókn málsins er langt komið og lýkur væntanlega í dag.

Fyrri greinBjört framtíð leggur grunn að framboði
Næsta greinSelfyssingar semja við Birki