Flöskum og dósum stolið úr söfnunargámi Ingunnar

Lögreglunni á Selfossi hefur borist beiðni um rannsókn á þjófnaði á tómum drykkjarumbúðum úr söfnunargámi björgunarsveitarinnar Ingunnar sem er til húsa að Lindarskógi 7 á Laugarvatni.

Grunur er um að þjófnaðurinn hafi átt sér stað frá því í lok september eða byrjun október síðastliðinn fram að áramótum.

Aðstandendur björgunarsveitarinnar áætla að verðmæti umbúðanna sem stolið hefur verið sé á bilinu 300 til 600 þúsund krónur. Það er dágóð upphæð sem hefði eflaust gagnast sveitinni vel til erfiðra og kostnaðarsamra björgunarstarfa í þágu almennings.

Lögreglan á Selfossi biður alla þá sem veitt geta upplýsingar að hafa samband í síma 480 1010. Lögreglan bendir á að lítill vísir getur komið að gagni til að upplýsa málið.

Fyrri greinViðhorfskönnun um gjaldtöku á ferðamannastöðum
Næsta greinMarín Laufey efst á styrkleikalista GLÍ