Brotist var inn í húsnæði björgunarsveitarinnar Bróðurhönd í Bræðrabúð við Heimaland undir Eyjafjöllum í nótt og flugeldum að verðmæti einnar milljón króna stolið.
„Við seljum bara í einn dag og sem betur fer vorum við búnir að ná okkar söludegi. En það var fullt af flugeldum eftir,“ segir Einar Viðar Viðarsson, formaður Bróðurhandar, í samtali við mbl.is.
Hann segir að hurð á húsnæði björgunarsveitarinnar hafi verið spennt upp með kúbeini einhvern tímann á milli klukkan 22:30 í gærkvöldi og 9:30 í morgun.
Þjófarnir virðast einungis hafa haft áhuga á flugeldum því engu öðru virðist hafa verið stolið.