Stefnt er að því að hífa flugvélina TF-ABB upp úr Þingvallavatni næstkomandi föstudag. Undirbúningur hefur staðið yfir frá því ís hvarf af Þingvallavatni.
Gert er ráð fyrir að unnið verði að uppsetningu vinnubúða vegna björgunaraðgerða á morgun. Setja þarf upp tjaldbúðir með aðstöðu fyrir björgunarmenn, öryggisbúnaður vegna köfunar. Einnig verður Björninn fjarskiptabíll Landsbjargar á vettvangi til að tryggja fjarskipti. Auk þessa eru prammar sem nýttir verða sem aðstaða úti á vatninu og einnig til að hífa flugvéla af botni Þingvallavatns og færa að landi.
Gert er ráð fyrir að aðgerðir á svæðinu hefjist með sjósetningu og prófunum á tækjabúnaði kl. 9 á föstudag. Vegna aðstæðna á vettvangi í dag verður óviðkomandi ökutækjum ekki hleypt niður á slóðann að svæðinu.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur ákveðið að banna yfirflug allra loftfara um svæðið frá kl. 8:00 á föstudagsmorgun og þar til aðgerðum er lokið. Fyrir liggur að nota þarf dróna lögreglu við aðgerðina og eins mun þyrla Landhelgisgæslunnar vera í viðbragðsstöðu til flugs á vettvang ef þarf.