Einstaklingur var fluttur á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir að hafa fallið af göngubrú yfir í Brúará í Biskupstungum í gær.
Mbl.is greinir frá þessu og hefur eftir Gunnari Erni Arnarsyni, fulltrúa Landhelgisgæslunnar, að björgunarsveitarmenn hafi verið fyrstir á vettvang en þyrlan hafi síðan verið kölluð út til að flytja hinn slasaða á sjúkrahús.
Gunnar segir líðan einstaklingsins eftir atvikum.