Ökumaður sem stöðvaður var á Suðurlandsvegi við Holtsós undir Eyjafjöllum á miðvikudaginn í síðustu viku af árvökulum lögreglumönnum reyndist á stolnum bíl, með stolnar skráningarplötur og hann sjálfur undir áhrifum áfengis og vímuefna.
Í bílnum fannst þýfi frá ýmsum brotavettvöngum og virðist maðurinn hafa farið ránshendi um uppsveitir Árnes- og í Rangárvallasýslu áður en hann var stöðvaður.
Hann gisti fangageymslur á Selfossi til næsta dags enda óviðræðuhæfur vegna ástands síns.
Við yfirheyrslur daginn eftir gat hann litlar skýringar gefið á ferðalagi sínu.
Bílnum reyndist hann hafa stolið í Reykjavík og númeraplötum í innbroti í tjaldvagnageymslu í Heiðarbæ í Flóahreppi. Á leið þangað hafði hann meðal annars stolið úr bílum ferðamanna við Þingvelli og á Laugarvatni og úr veitingahúsi í uppsveitum Árnessýslu. Þaðan lá leiðin meðal annars í íbúðarhús á Rauðalæk þar sem tölvubúnaði og fleiru stolið og í bíl við Seljalandsfoss þar sem greiðslukortum ferðamanna var stolið og reyndi maðurinn svo að nota þau í hraðbanka á Selfossi.