Í gær var óskað eftir aðstoð lögreglu, sjúkraflutninga og björgunarsveita vegna göngumanns í Reykjadal sem hafði fótbrotnað.
Björgunaraðilar komust fljótt á vettvang og báru viðkomandi að bifreiðastæði í Reykjadal þar sem sjúkrabifreið var staðsett.
Lögrelgan á Suðurlandi hefur fengið nokkur útköll vegna minnháttar umferðaróhappa og slysa. Þriggja bifreiða árekstur varð við Hveragerði um klukkan 14 í gær en meiðsli urðu engin.
Ein líkamsárás hefur verið kærð til lögreglu.