Framboðslisti E-listans kynntur

Frambjóðendur E-listans í Grímsnes- og Grafningshreppi. Ljósmynd/Pétur Thomsen

Framboðslisti E-listans í Grímsnes- og Grafningshreppi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor hefur verið kynntur.

E-listinn er með meirihluta í sveitarstjórn á yfirstandandi kjörtímabili og fékk fjóra menn kjörna af fimm í sveitarstjórn. Þrjú efstu sætin á listanum eru áfram skipuð Ásu Valdísi Árnadóttur, oddvita, Birni Kristni Pálmarssyni og Smára Bergmann Kolbeinssyni.

„Á listanum er fólk með fjölbreytta reynslu, menntun og bakgrunn sem hefur mikinn áhuga á málefnum sveitarfélagsins og vill gera gott samfélag enn betra,“ segir í tilkynningu frá E-listanum.

Framboðslisti E-lista fyrir sveitarstjórnarkosningar 2022:
1. Ása Valdís Árnadóttir 39 ára, oddviti, Bíldsbrún 1
2. Björn Kristinn Pálmarsson 39 ára, verkamaður , Borgarbraut 5
3. Smári Bergmann Kolbeinsson 35 ára, viðskiptafræðingur, Eyvík 1
4. Steinar Sigurjónsson 28 ára, umsjónarmaður umhverfismála, Hólsbraut 18
5. Anna Katarzyna Wozniczka 39 ára, verkefnastjóri, Brún við Írafoss
6. Pétur Thomsen 48 ára, myndlistarmaður, Upphæðum 3 Sólheimum
7. Guðrún Helga Jóhannsdóttir 43 ára, aðstoðarframkvæmdastjóri, Kringlu 2
8. Guðmundur Finnbogason 41 ára, verkefnastjóri, Hraunbraut 10
9. Jakob Guðnason 36 ára, sölumaður, Írafossi
10. Sigríður Kolbrún Oddsdóttir 70 ára, heldri borgari, Snæfoksstöðum 99

Fyrri greinB-listinn býður fram í Ölfusinu
Næsta greinÍþróttaskemman á Stokkseyri