Framboðslisti Framsóknar samþykktur

Halla Hrund á fundinum í Hveragerði í dag. Ljósmynd/Aðsend

Kjördæmissamband Framsóknar í Suðurkjördæmi samþykkti framboðslista Framsóknarflokksins fyrir komandi alþingiskosningar á fjölmennu kjördæmisþingi á Hótel Örk í Hveragerði í dag.

Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri, skipar 1. sætið, í 2. sæti er Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar og fjármála- og innviðaráðherra og í 3. sæti eru Jóhann Friðrik Friðriksson, alþingismaður.

„Ég er stoltur yfir sterkum lista Suðurkjördæmis með öflugu fólki, sem er fjölbreyttur með sterkri liðsheild. Framsókn er tilbúin til að takast á við áskoranir og halda áfram að vinna að lausnum sem bæta samfélagið. Ég hlakka til næstu daga og vikna,“ sagði Sigurður Ingi meðal annars á fundinum.

Halla Hrund Logadóttir, nýr oddviti Framsóknar í kjördæminu, segist full af auðmýkt og þakklæti. „Framsókn er í mínum huga holdgervingur hins dugmikla Íslendings, rödd skynsemi og seiglu á miðjunni sem hefur sýnt að getur unnið þvert á hagsmuni og pólitík. Það er akkúrat það sem við þurfum til sóknar og sátta í heimi þar sem átök og öfgar í umræðu eru sífellt algengari,“ sagði Halla Hrund.

Listi Framsóknar í Suðurkjördæmi í heild sinni:
1. Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri, Reykjavík
2. Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og innviðaráðherra, Hrunamannahreppur
3. Jóhann Friðrik Friðriksson, alþingismaður og lýðheilsufræðingur, Reykjanesbær
4. Fida Abu Libdeh, orku- og umhverfistæknifræðingur og frumkvöðull,
Reykjanesbær
5. Sigurður E. Sigurjónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, Kirkjubæjarklaustur
6. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs & varaþingmaður,
Reykjanesbær
7. Lilja Einarsdóttir, hjúkrunarforstjóri, Rangárþing eystra
8. Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, Vestmannaeyjar
9. Vilhjálmur R. Kristjánsson, þjónustustjóri, Grindavík
10. Iða Marsibil Jónsóttir, sveitarstjóri og varaþingmaður, Grímsnes- og
Grafningshreppur
11. Margrét Ingólfsdóttir, kennari, Sveitarfélagið Hornafjörður
12. Anton Kristinn Guðmundsson, bæjarfulltrúi, Suðurnesjabær
13. Ellý Tómasdóttir, forvarna- og bæjarfulltrúi, Árborg
14. Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri, Mýrdalshreppur
15. Ingibjörg Ingvadóttir, lögmaður og háskólakennari, Þorlákshöfn
16. Hafdís Ásgeirsdóttir, deildarstjóri á leikskóla, Rangárþing ytra
17. Jón K. Bragason Sigfússon, matreiðslumeistari, Bláskógabyggð
18. Drífa Sigfúsdóttir, heldri borgari, Reykjanesbær
19. Eiríkur Vilhelm Sigurðsson, sviðsstjóri, Rangárþing ytra
20. Silja Dögg Gunnarsdóttir, viðskiptastjóri og fyrrv. alþingismaður,
Reykjanesbær

Fyrri greinFramkvæmdir hafnar við Vaðölduver
Næsta greinHamar í ham á heimavelli