Framkvæmdir hafnar við Vaðölduver

Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á verkstað við Vaðöldu. Ljósmynd/Landsvirkjun

Framkvæmdir eru hafnar við fyrsta vindorkuver landsins, Vaðölduver, sem verður á 17 ferkílómetra svæði í kringum Vaðöldu í Rangárþingi ytra. Fulltrúar sveitarfélagsins, Borgarverks, verkfræðistofunnar COWI og Landsvirkjunar fögnuðu þessum áfanga í vikunni.

Við þetta tilefni heimsótti Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra verkstað við Vaðöldu í hressilegu, íslensku haustveðri. Á svæðinu er vegavinna og innviðauppbygging hafin, veglagning og undirbúningur fyrir uppsetningu vinnubúða.

„Það er mikið fagnaðarefni að framkvæmdir séu hafnar við Búrfellslund,“ sagði Guðlaugur Þór. „Við vitum öll að það er mikil þörf fyrir aukna endurnýjanlega orku til að mæta vexti samfélagsins og bæta raforkuöryggi. Þetta er heillaskref í sögu þjóðarinnar og gott að sjá hversu vel hefur verið vandað til verka hjá Landsvirkjun í þessu verkefni.“

Sveitarstjóri Rangárþings ytra, Jón G. Valgeirsson, tók undir þetta: „Það er gaman að verða vitni að þessum merku tímamótum í Íslandssögunni. Hér hjá okkur mun fyrsti hluti þessarar þriðju stoðar orkukerfisins rísa.“

Búið er að velja vindmylluframleiðanda eftir útboð á fyrri hluta árs. Verið er að ganga frá samningum og verður tilkynnt hvaða framleiðandi átti hagstæðasta tilboðið á næstu dögum. Vindmyllurnar verða reistar á árunum 2026 og 2027 og verður fyrri hluti vindorkuversins gangsettur haustið 2026.

Fyrri greinSterkur útisigur Selfyssinga
Næsta greinFramboðslisti Framsóknar samþykktur