Oddviti Framsóknarflokksins í Árborg vill girða fyrirhugað hundasleppisvæði við Klifið, milli Arnbergs og Ríkissals Votta Jehóva á Selfossi.
Á bæjarráðsfundi fyrir viku ítrekaði Helgi S. Haraldsson að hundasleppisvæði væri ómögulegt ógirt. „Skilgreining á hundasleppisvæði er afgirt svæði. Að skipuleggja opið svæði er til lítils,“ sagði hann og benti á að umrætt svæði væri nálægt íbúabyggð. Lausir hundar geti því „vakið ótta og ugg þeirra sem við þá eru hræddir“.