Friðland að Fjallabaki 40 ára

Löðmundur séð til suðausturs, Frostastaðavatn bak við fjallstoppinn og Torfajökull í bakgrunni til hægri. Ljósmynd © Mats Wibe Lund - mats@mats.is

Í ágúst verða liðin 40 ár frá því að Friðland að Fjallabaki var stofnað með auglýsingu um friðlýsingu. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda sérstæðar jarðminjar, landslag, lífríkið og ósnortin víðerni svæðisins.

Friðlandið er 44.624 hektarar að stærð og innan þess er hluti Torfajökulssvæðisins sem er eitt stærsta og öflugasta háhitasvæði landsins. Torfajökulssvæðið þykir einstakt á heimsmælikvarða og er eitt af þeim svæðum sem eru á yfirlitsskrá heimsminja fyrir Ísland hjá UNESCO.

Afþreying og gisting
Í Friðlandinu er möguleiki á að stunda fjölbreytta afþreyingu. Hægt er að velja um margar fjölbreyttar gönguleiðir og hjólaleiðir og einnig liggja vinsælar reiðleiðir um friðlandið. Einnig er veiði í flestum vötnum á svæðinu og hægt að kaupa veiðileyfi í Landmannahelli og Landmannalaugum. Þrjú tjaldsvæði eru í friðlandinu þar sem einnig er boðið upp á skálagistingu.

Afmælisdagskrá
Í friðlandinu starfa landverðir yfir sumartímann og eru þeir með fasta viðveru í Landmannalaugum frá kl. 10:00 – 13:00 þar sem þeir veita upplýsingar og fræðslu um svæðið. Í tilefni af því að friðland að Fjallabaki verður 40 ára í ár ætla landverðir að bjóða upp á fræðslugöngur úr Landmannalaugum laugardagana 6., 13. og 27. júlí. Lagt verður af stað frá upplýsingabás í Landmannalaugum kl. 14:00. Gengið verður um Laugahraun að Brennisteinsöldu og til baka um Grænagil. Gangan tekur um 2,5 klst. og er gestum að kostnaðarlausu. Þetta er miðlungs létt ganga þar sem landverðir segir frá náttúru og sögu friðlandsins. Á afmælisdaginn sjálfan  sem er 13. ágúst verður boðið upp á afmælisgöngu sem verður nánar auglýst síðar.

Fyrri greinSjóðandi Suðurlandsjazz í Skógum um helgina
Næsta greinHundi bjargað úr sprungu á Þingvöllum