Sumarhús við Þingvallavatn er meðal kyrrsettra eigna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Brunabótamat þess hljóðar uppá 10 milljónir króna.
Um er að ræða þrjú hús, sumarhúsakofa og bátaskúr, samtals 52 fermetrar, byggð árið 1960, samkvæmt fasteignaskrá.
Húsin standa afskekkt á Mjóanesi, í fallegri vík við Þingvallavatn en virði eignarinnar liggur einmitt í staðsetningunni.
Sjá nánar í Sunnlenska fréttablaðinu. PANTA ÁSKRIFT