Fuglaflensa á alifuglabúi í Ölfusi

Höfuðstöðvar Matvælastofnunar á Selfossi. sunnlenska.is/Sigmundur

Í morgun kom upp grunur um fuglainflúensu í kalkúnum á búinu Auðsholti í Ölfusi. Eigendur brugðust hratt við og sendu fugla til rannsóknar á Tilraunastöð HÍ að Keldum og niðurstöður rannsóknanna lágu fyrir um miðjan dag.

Í ljós kom að um skæða fuglainflúensu var að ræða af gerðinni H5N5. Matvælaráðherra hefur fyrirskipað niðurskurð og sóttvarnaráðstafanir í samræmi við tillögur yfirdýralæknis og á grundvelli dýravelferðar og sóttvarna.

Undirbúningur fyrir aflífun fuglanna er hafinn og fyrirmæli hafa verið gefin til að koma í veg fyrir útbreiðslu sýkingarinnar. Í viðkomandi húsi eru um 1300 fuglar.

Tíu kílómetra takmörkunarsvæði hefur verið skilgreint umhverfis búið. Á því svæði hafa verið gefin fyrirmæli um bann við flutningi fugla og annars sem borið getur smit út af fuglabúum. Jafnframt hefur starfsfólki búa á því svæði verið gefin fyrirmæli um að vera vakandi fyrir sjúkdómseinkennum í fuglum á búunum og tilkynna til Matvælastofnunar ef það hefur minnsta grun um sýkingu. Aðrir fuglaeigendur eru einnig beðnir um að vera vel á verði og hafa samband við Matvælastofnun í síma 8617419 án tafar verði þeir varir við einkenni sem geta bent til fuglainflúensu.

Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að óljóst sé um uppruna smitsins en um er að ræða sömu gerð veirunnar og hefur greinst í villtum fuglum í haust og er því líklegt að smitið hafi borist frá þeim.

Matvælastofnun minnir á að fuglainflúensa getur mögulega smitað fólk sem er í náinni snertingu við veika fugla. Ekki er þó vitað um smit í fólki með þessari tegund veirunnar. Þá stafar engin hætta af neyslu afurða og því er ekki þörf á innköllun á kalkúnakjöti sem er á markaði.

Fyrri greinHSK met í grindahlaupi
Næsta greinFriðlýsing sex svæða felld úr gildi