Í dag kl. 16:30 mun Fuglavernd bjóða upp á fuglaskoðun í Fuglafriðlandinu í Flóa.
Jóhann Óli Hilmarsson mun leiða gesti um svæðið en fuglaskoðunin hefst við fuglaskoðunarskýlið sem er við bílastæðið í friðlandinu. Votlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir.
Fuglalífið er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma en nærri 25 tegundir verpa þar að staðaldri.
Mikilvægt er að vera vel skóaður og muna eftir sjónaukanum og gaman er að taka með handbók um fugla. Allir velkomnir.