Hreppsráð Rangárþings ytra lýsir mikilli furðu og vonbrigðum með hugsanlegar breytingar á rammaáætlun vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár.
Nokkur umræða hefur verið um það í fjölmiðlum síðustu daga að ríkisstjórnin ætli að beita sér í því að gera verulegar breytingar á flokkun virkjanakosta og færa virkjanakosti í neðri hluta Þjórsár úr nýtingarflokki í biðflokk.
Hreppsráð Rangárþings ytra lýsir yfir mikilli furðu og vonbrigðum með hugsanlegar breytingar á rammaáætlun vegna virkjana. „Sú óvissa sem þessar umræður hafa fyrir fyrir samfélagið og fyrirhugaða uppbyggingu, sem tengist virkjunum, er algerlega óásættanleg í því árferði sem við búum við á þessum tímum,“ segir í bókun hreppsráðs.
Hreppsráð skorar á stjórnvöld að rammaáætlun verði tekin alvarlega og treyst verði á að fagleg sjónarmið verði látin ráða för í ákvarðanatöku Alþingis.