Lögreglan á Selfossi kærði 25 ökumenn í liðinni viku fyrir að aka of hratt. Sá sem hraðast ók var mældur á 185 km/klst hraða á veginum um Lyngdalsheiði þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst.
Undanfarin ár hefur verið bætt við lögreglumanni og bíl í eftirlit með umferð yfir sumarmánuðina og er sú viðbót greidd með fjármagni frá umferðaröryggissjóði. Eftirlit þetta hefur verið skipulagt þannig að áhersla er lögð á að vera á þeim stöðum þar sem svokallaðir „svartblettir“ eru í vegakerfinu.
Sérstaklega hefur verið haldið utan um þetta eftirlit og reynsla síðustu ára er að sektargreiðslur vegna þeirra brota sem kært er vegna í þessu eftirliti skila ríkissjóði rúmlega þeirri upphæð sem hann leggur til umferðaröryggissjóðs.