Í morgun var fyrsta skóflustungan tekin að nýrri aðstöðu Lýsis á nýju athafnasvæði vestan Þorlákshafnar. Framkvæmdir hefjast eftir helgi og samkvæmt samkomulagi Ölfuss og Lýsis hf. á starfsemin að færa sig á nýjan stað í júlí á næsta ári.
Það voru Kjartan Ólafsson, framkvæmdarstjóri Lýsis hf. í Þorlákshöfn og Gunnsteinn R. Ómarsson, bæjarstjóri Ölfuss sem tóku fyrstu skólfustunguna.
Sveitarfélagið Ölfus og Lýsi hf. undirrituðu samning síðastliðið haust um að Lýsi hf. myndi færa fiskþurrkunarstarfsemi sína á nýtt athafnasvæði vestan Þorlákshafnar eða hætta starfsemi hennar.
Lýsi hf. tók þá ákvörðun að færa starfsemina og byggja nýja verksmiðju. Verksmiðjan verður 2.500 fm og útbúin nýjasta tækjabúnaði.