Fyrstu skóflustungur að nýrri viðbyggingu við Grunnskólann í Hveragerði voru teknar síðasta vetrardag – með góðu millibili vegna tveggja metra reglunnar.
Við sama tilefni var undirritaður verksamningur við Reir verk ehf sem átti lægsta tilboð í verkið, ríflega 390 milljónir króna.
Arkitekt og aðalhönnuður verksins er dr. Maggi Jónsson. Verkfræðihönnun var í höndum Eflu verkfræðistofu og Kára Sveinbjörns Gunnarssonar verkfræðings. Verkið felur einnig í sér umfangsmiklar lóðaframkvæmdir en lóðin liggur að Lystigarðinum Fossflöt. Um hönnun lóðar sá Landslag ehf, Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt. Hönnunarstjóri var Ríkharður Kristjánsson, verkfræðingur.
Um er að ræða 750 fermetra viðbyggingu á tveimur hæðum sem verður staðsett norðan við núverandi skólabyggingu. Sex kennslustofur eru í viðbyggingunni auk fjölnotarýmis. Verklok eru áætluð í júlí á næsta ári.