Lögreglustjórinn á Suðurlandi gerði í dag kröfu fyrir Héraðsdómi Suðurlands um áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir manni sem handtekinn var þann 27. apríl sl. vegna gruns um manndráp.
Krafan er lögð fram á grundvelli brýnna rannsóknarhagsmuna en endanleg niðurstaða krufningar liggur ekki fyrir.
Héraðsdómari kvað upp úrskurð sinn kl. 15 í dag og féllst á kröfu lögreglustjóra en stytti í tvær vikur í stað fjögurra.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir að rannsókn málsins hafi verið mjög umfangsmikil, bæði hvað varðar gagnaöflun og eins úrvinnslu gagna. Að henni lokinni verður það sent héraðssaksóknara til meðferðar.