Lögreglan á Suðurlandi hefur gert kröfu fyrir Héraðsdómi Suðurlands um að tveir karlmenn, sem handteknir voru á Selfossi í gær, verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald í eina viku.
Mennirnir voru handteknir vegna rannsóknar á andláti konu á þrítugsaldri, sem fannst látin í heimahúsi á Selfossi síðdegis í gær. Lögreglan hefur staðfest að grunur er um að andlát konunnar hafi borið að með saknæmum hætti.
Mennirnir, sem eru báðir á þrítugsaldri, voru handteknir á vettvangi. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir að rannsókn málsins sé á viðkvæmu stigi og vegna rannsóknarhagsmuna getur lögregla ekki veitt frekari upplýsingar um málið.