Meiri ágallar reyndust vera á nýrri brú sem verið er að byggja yfir Jökulsá á Sólheimasandi en upphaflega leit út fyrir þegar steypumót voru fjarlægð.
Morgunblaðið greinir frá þessu í dag en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hefur verið unnið að lagfæringum, auk þess sem verið er að vinna úr rannsóknum á umfangi vandans. Vegna þessa hefur tafist að brúin verði tekin í notkun.
Upphaflega átti brúin að vera tilbúin í nóvember í fyrra en verktíminn var rýmdur og vonast er til að hægt verði að taka brúna í notkun á næstu vikum.