Fjöldi ferðamanna hefur gengið um þriggja kílómetra leið að bandaríska flugvélarflakinu á Sólheimasandi í dag eftir að landeigendur lokuðu leiðinni fyrir bílaumferð.
Morgunblaðið greinir frá þessu.
„Það hefur verið haugur af bílum þarna fyrir utan í dag. Fólk labbar niður eftir,“ segir Benedikt Bragason, einn af landeigendum, í samtali við mbl.is.
Myndin sem fylgir fréttinni var tekin í dag og sýnir hvernig lokað er fyrir bílaumferð niður á sandinn.
Benedikt segir ferðamennina ekki hafa kvartað yfir tilhöguninni en landeigendur bönnuðu umferð um svæðið í gær vegna slæmrar umgengni.
„Við leitum allra leiða til að opna þetta aftur. Við finnum einhverja lausn á þessu. Best væri að opna aftur í dag en ég á ekki von á því,“ sagði Benedikt ennfremur.