Garðar og Jóhanna Ýr efst á B-listanum í Hveragerði

Garðar R. Árnason, grunnskólakennari og bæjarfulltrúi leiðir lista Frjálsra með Framsókn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Hveragerðisbæ.

Í öðru sæti er Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, æskulýðsfulltrúi og fyrrverandi bæjarfulltrúi og þriðja sætið skipar Snorri Þorvaldsson, lögreglunemi.

B-listi Frálsra með Framsókn fékk 13,1% í síðustu sveitarstjórnarkosningum og einn bæjarfulltrúa kjörinn af sjö. Garðar leiddi listann sömuleiðis þá og er núverandi bæjarfulltrúi B-listans.

Framboðslistinn var samþykktur á félagsfundi sem fram fór á Hótel Örk í Hveragerði í dag, sumardaginn fyrsta. Í tilkynningu frá framboðinu segir að listann skipi öflugt fólk sem býr að fjölbreyttri menntun og reynslu úr atvinnulífinu, sem og breytt aldursbil.

Framboðslisti Frjálsra með Framsókn í Hveragerði:
1. Garðar R. Árnason, 63 ára grunnskólakennari og bæjarfulltrúi
2. Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, 39 ára æskulýðsfulltrúi og fyrrv. bæjarfulltrúi
3. Snorri Þorvaldsson, 28 ára lögreglunemi
4. Sæbjörg Lára Másdóttir, 27 ára hjúkrunarfræðingur
5. Nína Kjartansdóttir, 34 ára þroskaþjálfi
6. Örlygur Atli Guðmundsson, 55 ára tónlistamaður, kennari og kórstjóri
7. Vilborg Eva Björnsdóttir, 43 ára stuðningsfulltrúi
8. Sigmar Egill Baldursson, 23 ára sölumaður
9. Steinar Rafn Garðarsson, 35 ára sjúkraflutningamaður
10. Daði Steinn Arnarsson, 46 ára grunnskólakennari
11. Adda María Óttarsdóttir, 24 ára hjúkrunarfræðinemi
12. Herdís Þórðardóttir, 59 ára innkaupastjóri
13. Guðmundur Guðmundsson, 67 ára bifvélavirki
14. Garðar Hannesson, 83 ára eldri borgari

Fyrri greinTveir Selfyssingar stýrðu flugi hjá Icelandair í fyrsta sinn
Næsta greinMiðflokkurinn kynnir sex efstu á listanum í Árborg