Gerðu náttúrulistaverk og fræddust um Ómar

Ljósmynd/Víkurskóli

Á degi íslenskrar náttúru fóru nemendur í 1. og 2. bekk í Víkurskóla niður í Víkurfjöru og gerðu náttúrulistaverk.

Á leiðinni fræddust nemendur um haustið, örnefni og það sem fyrir augu bar, síðan voru sköpuð mismunandi listaverk, allt eftir innblæstri nemenda sem sökktu sér í listsköpunina.

Þegar heim var komið fræddust nemendur um Ómar Ragnarsson, sem dagurinn er tileinkaður, en hann varð áttræður þennan dag.

Nemendur í 3.-4. bekk fóru í útikennslustofu skólans á Syngjandanum, sögðu sögur, fræddust um Ómar og hans mikla starf í þágu íslenskrar náttúru. Lagt var á ráðin um næstu útikennsluferð, sungin nokkur lög og farið í frisbígolf.

Fyrri greinFyrsti sigur Hamars/Þórs í deildinni
Næsta greinHamar tapaði einvíginu gegn KFS