Gestur númer 100.000 á Þorvaldseyri

Í síðustu viku kom hundraðþúsundasti gesturinn í heimsókn í gestastofuna sem opnuð var við Þorvaldseyri eftir gosið í Eyjafjallajökli.

Fjölskyldan á Þorvaldseyriopnaði gestastofu tileinkaða gosinu þann 14. apríl 2011 en þá var liðið ár síðan að gosið hófst. Gestum er þar boðið upp á 20 mínútna heimildamynd um hvernig er að búa við rætur eldfjalls þegar það gýs og hversu mikil áhrif gosið í jöklinum hafði á líf íbúa.

Í gestastofunni er veggur tileinkaður sögu eldgosa á Íslandi frá tímum víkinga og inn í nútímann og tilkomumiklar myndir prýða aðra veggi húsnæðisins.

Á þessum rúmu tveimur árum sem Eyjafjallajökuls gestastofan hefur verið opin hefur fjöldi fólks heimsótt hana. Í ár hafa nú þegar 36 þúsund manns komið við og hefur verið jöfn og þétt aukning alla mánuði ársins.

Metdagar hafa verið núna í júlí, 10. júlí komu 720 manns og þann 17. júlí komu 677 gestir en það var einmitt þann 17. júlí 100.000 gesturinn frá upphafi kom við. Það var hinn norski Emil Jøsendal sem var þess heiðurs aðnjótandi og afhenti Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri, honum viðurkenningaskjal og smá bút úr Eyjafjallajökli.

Fyrri greinSigurður Eyberg hættur hjá Selfyssingum
Næsta greinPryor til liðs við FSu