Björn Ingi Jónsson hefur verið ráðinn verkefnisstjóri í almannavörnum hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi og hefur störf um komandi áramót.
Björn Ingi kemur í stað Víðis Reynissonar sem sinnt hefur starfinu frá ársbyrjun 2016.
„Starfið leggst mjög vel í mig. Ég er fullur tillhlökkunar að fara að starfa með öllu því góða fólki sem kemur að og tengist þessum málum á öllu Suðurlandi. Ég hef verið tengdur við þennan málaflokk í nokkuð mörg ár og veit að hann getur verið krefjandi en einnig mjög skemmtilegur og gefandi,“ sagði Björn Ingi í samtali við sunnlenska.is.
Björn Ingi mun sinna starfinu í umboði lögreglustjóra og sveitarfélaga í umdæminu en hann hefur langa reynslu af störfum í björgunargeiranum og setið bæði sem formaður Björgunarfélags Hornafjarðar og í svæðisstjórn björgunarsveita þar eystra.
Hann starfaði sem héraðslögreglumaður um 10 ára skeið og sem afleysingamaður í lögreglu yfir sumartímann þar að auki. Þá hefur hann setið í almannavarnarnefnd frá árinu 2006 og sem formaður hennar þau fjögur ár sem hann var bæjarstjóri hjá Sveitarfélaginu Hornafjörður.
Björn Ingi var valinn úr hópi tíu umsækjenda sem sóttu um starfið.