Landverðir Umhverfisstofnunar hafa sett upp girðingu við Skógafoss til að sporna við átroðningi ferðafólks á grasflötinni framan við fossinn. Grasið er horfið á stórum bletti.
Næsta skref er að endurheimta gróðurþekjuna innan girðingar.
Tvær gönguleiðir eru að fossinum, meðfram hlíðinni að austan og eftir áreyrunum að vestan.