Fimmtán járngrindum, sem til dæmis eru notaðar til að girða af byggingarsvæði, var stolið frá húsbyggingu í Breiðumýri á Selfossi fyrr í mánuðinum. Einnig var stolið viðeigandi steinklumpum sem grindurnar standa í.
Þjófnaðurinn átti sér stað einhvern tímann á tímabilinu frá 18. til 21. mars.
Telji einhver sig hafa upplýsingar um þetta mál vill lögreglan á Suðurlandi gjarnan frétta af því. Hægt er að hafa samband við lögreglu í síma 444-2000 eða í tölvupósti á sudurland@logreglan.is.