Karlmaður var handtekinn á Eyrarbakka aðfaranótt sunnudags, grunaður um líkamsárás, en hann og sá sem varð fyrir árásinni voru gestir á veitingastað þar.
Árásarmaðurinn svaf úr sér í fangaklefa um nóttina og var yfirheyrður um málsatvik daginn eftir.
Í dagbók lögreglunnar á Suðurlandi kemur fram að beðið sé niðurstaðna um alvarleika áverka þess er fyrir árásinni varð.