Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur, kom færandi hendi í Ráðhús Árborgar í morgun með gjöf til leikskóla Árborgar; þjálfunarefni sem bætir framburð barna, eykur orðaforða og undirbýr læsi.
Bryndís hyggst gefa öllum leikskólum á Íslandi þetta þjálfunarefni en verkefnið vinnur hún í samstarfi við IKEA, Lýsi, Marel, Raddlist og hjónin Björgólf Thor og Kristínu Ólafsdóttur.
Bryndís hefur starfað í rúmlega 30 ár sem talmeinafræðingur og hefur m.a. gefið út námsefni undir heitinu Lærum og leikum með hljóðin sem ætlað er öllum barnafjölskyldum og skólum. Námsefnið byggir á fagþekkingu talmeinafræðinnar, rannsóknum og reynslu Bryndísar af því að vinna með börnum, foreldrum og fagfólki í skólum.
Í tilefni af þessum tímamótum í starfi ákvað Bryndís að gefa efnið til allra leikskóla á landinu. Það var mögulegt með eigin framlagi og stuðningi ofangreindra fyrirtækja og einstaklinga sem leggja áherslu á að hlúa þurfi að íslenskunni og læsi barna.
Auk þess að stoppa á Selfossi í dag kom Bryndís við í Hveragerði og á Hvolsvelli til þess að afhenda gjafirnar.