Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála-, efnahags- og innviðaráðherra, tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýrri brú yfir Ölfusá við Selfoss. Áður var skrifað undir verksamning vegna byggingu brúarinnar.
Í kjölfar undirritunarinnar í dag hefst fullnaðarhönnun mannvirkja en gera má ráð fyrir að undirbúningsframkvæmdir á verkstað hefjist innan skamms. Verklok eru áætluð í október 2028.
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, Sigurður Ingi og Þorvaldur Gissurarson, framkvæmdastjóri ÞG Verks, skrifuðu undir verksamninginn í golfskálanum við Svarfhólsvöll og var fjöldi manns var viðstaddur undirritunina enda hafa margir beðið þessarar stundar með óþreyju.
„ÞG verktakar eru reyndir verktakar sem hafa byggt nokkrar brýr fyrir Vegagerðina undanfarin ár. Í þessu verki þurfa þeir að reiða sig á hæfni erlendra aðila að auki fyrir svona sérstaka brúargerð. Þeir hafa sett saman teymi með mikla reynslu af sambærilegum mannvirkjum og við höfum því fulla trú á að þeir leysi þetta vel úr hendi,“ sagði Bergþóra á þessum tímamótum.
Nýja brúin eykur lífsgæði
Þorvaldur hjá ÞG verk hlakkaði til að hefjast handa og hann segir verkefnið metnaðarfullt. „Bygging Ölfusárbrúar er flókið og krefjandi verk, og um leið glæsilegt mannvirki og mikilvæg samgöngubót.“
Um 130 manns voru viðstaddir fyrstu skóflustunguna og að henni lokinni steig Sigurður Ingi í pontu og sagði nýju brúna færa íbúum Selfoss og Suðurlands aukin lífsgæði með því að umferð þjóðvegarins er færð úr miðbænum.
„Hún mun auka öryggi og greiða umferða fyrir alla landsmenn um Suðurland. Ný brú þarf að mæta aukinni umferð og standast mikið álag af völdum íslenskra náttúruafla, þ.á.m. flóðahættu, ísstíflum og jarðskjálftum. Hönnun brúarinnar sem stagbrú tekur mið af þessu og er því mjög vel til þess fallin að mæta álagi af þessu tagi. Við þurfum góðar brýr fyrir samfélagið okkar og þessi brú er í senn tímabær og glæsileg,“ sagði Sigurður Ingi.
Samstarfsverkefni nokkurra aðila
Nýja brúin verður 330 metra löng og 19 metra breið og nýr vegkafli í kringum hana er 3,7 km langur, auk um 1 km af öðrum tveggja akreina vegum. Ný vegamót verða gerð austan Selfoss, undirgöng undir þjóðveginn fyrir gangandi, hjólandi og hestamenn ásamt undirgöngum fyrir bíla og gangandi. Verklok eru áætluð 2. október 2028.
Auk umferðar mun brúin bera uppi lagnir veituaðila, rafmagn, ljósleiðara, heitt vatn og kalt. Framkvæmdin við nýju brúna er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Sveitarfélagsins Árborgar og Flóahrepps, auk Landsnets, Selfossveitna, Mílu, HS veitna og RARIK.
Verksamningur, fjármögnun og framkvæmdakostnaður
Vegagerðin óskaði eftir þátttakendum í samkeppnisútboð í mars 2023. Margir sýndu verkefninu áhuga og fimm aðilar voru metnir hæfir. Þegar tilboð voru opnuð í mars 2024 hafði einn aðili sent inn tilboð; ÞG Verk. Í framhaldi fóru fram samningsviðræður sem lauk nú fyrir stuttu. Þær samningsviðræður leiddu til frekari hagkvæmni í verkinu frá upphafstilboði.
Um er að ræða alútboð þar sem ábyrgð á endanlegri hönnun mannvirkja er á höndum verktakans og hefur ÞG Verk ráðið til sín hönnuði til að fullhanna verkið. Alþjóðlega hönnunar- og ráðgjafafyrirtækið Ramboll mun hanna brú yfir Ölfusá. Verkfræðistofan Verkís annast hönnun vega, jarðtækni auk annarra brúa og undirganga. VSL, alþjóðlegt fyrirtæki með sérþekkingu í hönnun og byggingu kapalbrúa, mun starfa með ÞG verktökum að verkinu.
Heildarupphæð verksamningsins er 15,7 milljarðar króna og hluti af honum er kostnaður veitufyrirtækja og sveitarfélaga sem tóku þátt í útboðinu með Vegagerðinni. Áætlaður framkvæmdakostnaður brúna og tengda vegi í heild sinni er 14,3 milljarðar króna á verðlagi ársins 2024. Þar af er brúin talin kosta um 8,4 milljarða. Fjármagnskostnaður (verðbætur til verkloka og framkvæmdafjármögnun) vegna lántöku er áætlaður 3,6 ma.kr. Samtals er því heildarkostnaður við verkið áætlaður um 17,9 milljarðar króna sem ætlunin er að standa undir með gjaldtöku af umferð.