Í gærkvöldi fór fram árlegt vorkvöld í versluninni Lindex á Selfossi.
Fjölmenni var á kvöldinu sem þótti heppnast ákaflega vel.
Fyrirtækin Tilefni og Sportbær voru með vörukynningu, MS bauð upp á osta, spákonan Sigga Kling var á staðnum og spáði fyrir gestum. Boðið var upp á léttar veitingar og 20% afsláttur var af öllum vörum. Fyrstu viðskiptavinirnir fengu gjafapoka og nokkrir heppnir á gestalistanum fengu gjafakort til að nota á viðburðinum.