Gleðilegt sumar!

Íslenski fáninn. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Sumar og vetur frusu ekki saman en hvergi á Suðurlandi er frost í nótt. Frjósi sumar og vetur saman segir íslensk þjóðtrú það góðs viti og að heyfengur verði góður í sumar.

Sunnlenskir hitamælar hafa í raun ekki sýnt annað eins á þessum degi undanfarin ár en á miðnætti var 10,9°C á Steinum undir Eyjafjöllum og 10,1°C á Hjarðarlandi í Biskupstungum. Á Eyrarbakka var 7,4°C hiti og á hálendinu var sömuleiðis hlýtt en í Veiðivatnahrauni var 4,8°C hiti og 2,8°C á Hveravöllum.

Í bókinni Sögu daganna segir Árni Björnsson að hvarvetna hafi verið fylgst með því hvort frost væri aðfaranótt sumardagsins fyrsta, þ.e. hvort saman frysti sumar og vetur.

Yfirleitt var það talið góðs viti og jafnvel álitið að rjóminn ofan á mjólkurtrogunum yrði jafn þykkur og ísskánin á vatninu þessa nótt. Í því skyni settu menn skál eða skel með vatni út um kvöldið og vitjuðu svo eldsnemma morguns.

Frá því mælingar sunnlenska.is hófust árið 2010 hafa sumar og vetur yfirleitt frosið saman. Á þessu eru þrjár undantekningar; árin 2014, 2017 og 2018. Árið 2014 varð sumarið óvenju hlýtt en um leið mjög úrkomusamt, árið 2017 var úrkoma í meira lagi í maí en síðan tók við sólríkt sumar og árið 2018… já, þið munið líklega flest hvernig sumarið var 2018, úrkoma vel yfir meðallagi og sólskinsstundir fáar. 

Sunnlenska.is óskar lesendum sínum gleðilegs sumars.

Fyrri greinVor í Árborg hefst á sumardaginn fyrsta
Næsta greinGöngustíg við Seljalandsfoss lokað norðanmegin