Ágætlega veiddist í 5. viku í Veiðivötnum en alls komu 2.625 fiskar á land. Þetta er besta veiði í 5. viku síðan skráningar hófust.
Flestir fiskar veiddust í Litlasjó, 564, en einnig var góð bleikjuveiði í Langavatni og Nýjavatni. Eins og venjulega hefur dregið talsvert úr veiðinni frá því sem var í fyrstu tveimur vikunum.
Nú eru afslappaðri veiðimenn á vatnsbökkunum, oft fjölskyldufólk sem allt eins er að njóta einstakrar náttúru Veiðivatna í bland við veiðiskapinn.
Einnig eru mörg vatnanna orðin svo heit að fiskurinn leitar niður á dýpið í svalara umhverfi og þá er oft erfiðara að ná honum.