Rekstur sveitarfélagsins Ölfuss gekk vel á síðasta ári. Ársreikningur sveitarfélagsins var samþykktur á fundi bæjarstjórnar í dag.
Rekstrartekjur A-hluta voru alls 1.385.6 m.kr. en rekstrarútgjöld 1.192.6 m.kr. og fjármagnsliðir 8.3 m.kr. og var rekstrarniðurstaða A-hluta því jákvæð um 201.3 m.kr.
Rekstrartekjur samstæðu eða A- og B-hluta voru 1.578.6 m.kr. en rekstrarútgjöld 1.323.4 m.kr. og vaxtagjöld 18.9 m.kr. Rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum A- og B-hluta var því jákvæð um 236.2 m.kr.
Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir að helstu ástæður fyrir góðum rekstri megi rekja til þess að nýjir samningar náðust við Eignarhaldsfélagið Fasteign og er tekjufært í bókhaldi um 106 m.kr vegna þess. Auk þess sem tekjur sveitarfélagsins hafa aukist milli ára.
Handbært fé frá rekstri var 331.9 m.kr. fyrir A- og B-hluta og fjárfestingar 87.2 m.kr. Afborganir langtíma lána voru 123 m.kr og handbært fé í lok árs var 287,1 m.kr.
Eignir samtals voru í árslok 4.046 m.kr. og hækka milli ára úr 3.969 m.kr. eða um kr. 77 m.kr. Skuldir samtals voru í árslok 2.159 m.kr. og lækka úr 2.319 m.kr eða um 160 m.kr. á milli ára. Langtímaskuldir í lok árs voru 1.925.7 m.kr. og lækkuðu á árinu um 161.7 m.kr. Lífeyrisskuldbindingar hækka um 11 m.kr. á milli ára og eru 318 m.kr í árslok.
Veltufjárhlutfall var 1.56 í lok árs og hafði hækkað úr 1.13 á árinu. Eiginfjárhlutfall var 46.62%. Engin lán voru tekin á árinu 2012.
Samkvæmt 64. gr. nýrra sveitarstjórnarlaga er kveðið á um að heildarskuldir og skuldbindingar A og B hluta í reikningsskilum skv. 60. gr. laganna megi ekki vera hærri en sem nemur 150%. Skuldahlutfall sveitarfélagsins er í árslok 2012 114% af rekstrartekjum og því vel undir hámarki sem lög kveða á um.