Góðar gjafir frá Lions á ljósmæðravaktina

Í síðustu viku færði Lionsklúbbur Selfoss ljósmæðravakt Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi góðar gjafir að andvirði tæplega 350 þúsund króna.

Um var að ræða nýjan Lazyboy stól á fæðingastofuna, nýjan súrefnismettunarmæli og fósturhjartsláttarnema (Doptone). Súrefnismettunarmælirinn nýtist vel ef fylgjast þarf með mettun súrefnis hjá barninu af einhverjum ástæðum, og vegna þess hve nettur hann er, þá hindrar hann ekki samveru foreldra og barns meðan barnið er tengt við nemann. Fósturhjartsláttarneminn er mikið notaður í mæðravernd og í fæðingum og kemur sér því mjög vel að fá aukatæki.

Lionsklúbbur Selfoss hefur einnig skrifað undir viljayfirlýsingu fyrir því að gefa ljósmæðravakt HSU nýtt fæðingarúm, sem er útbúið með meiri stillingarmöguleikum, er liprara og stenst betur nútímakröfur skjólstæðinga og starfsmanna en fyrra rúm.

Fyrri greinFlóðgáttirnar opnuðust á Hvolsvelli – Árborg lenti í Ísbirninum
Næsta greinMargrét María dúxaði í ML