Rammvilltum og gegnköldum göngumanni var bjargað við Ölkelduháls norðan Hveragerðis í gær. Hending réði því að maðurinn fannst en hann hafði legið úti í fyrrinótt.
Mðurinn hafði legið úti um nóttina og hending réð því að hann rakst á fjóra menn sem komu honum til bjargar. Gísli Már Gíslason, líffræðiprósfessor, og þrír erlendir starfsfélagar hans voru við sýnatöku í heitum læk í austanverðum Ölkelduhálsi um hádegisbil í gær þegar þeir gengu fram á erlendan ferðalang.
„Hann biður um hjálp og ég kem honum inn í bíl. Þá var hann allur orðinn blautur, hafði ekki getað rennt að sér jakkanum sem var orðinn mjög þungur og allur í klaka,“ sagði Gísli í samtali við fréttastofu RÚV.
Gísli hitaði bílinn, og gaf manninum kaffi og eitthvað að borða. Þá fór hann að hressast aðeins og skjálfa. Maðurinn tjáði Gísla að hann hefði verið úti alla nóttina. Hann hafði farið í göngutúr og síðan villst. Þegar myrkrið skall á gróf hann sig í fönn. Maðurinn hélt síðan áfram daginn eftir og taldi sig jafnvel vera að nálgast Þingvelli.
Gísli hringdi í lögreglu og varð úr að fjórmenningarnir óku mannininum til Reykjavíkur þar sem hann er búsettur.