Umhverfisstofnun hefur lokað göngustígnum á Skógaheiði næstu tólf vikurnar, til 17. mars 2017, eða þar til óhætt verður að hleypa umferð fólks aftur inn á svæðið.
Álag á göngustígum við Skógafoss hefur verið gríðarlegt í vetur vegna mikils ferðamannastraums. Hlýindi og vætutíð hafa gert það að verkum að göngustígar hafa vaðist upp í leðju og hætta hefur verið á verulegum skemmdum á viðkvæmri náttúru svæðisins.
Umhverfisstofnun lokaði göngustígnum á Skógaheiði þann 9. desember síðastliðinn tímabundið fyrir ferðamönnum með það að markmiði að vinna að viðeigandi verndarráðstöfunum t.d. með því að byggja þar upp malargöngustíg.
Ljóst er að framkvæmdir á Skógaheiði munu taka tíma og spilar veðráttan þar stórt hlutverk. Því er stígnum lokað til 17. mars næstkomandi eða þar til verndarráðstöfunum er lokið.