Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur ákveðið nöfn á götur í Brautarholti.
Sveitarstjórn hafði óskað eftir tillögum og höfðu fjölmargar hugmyndir borist frá íbúum sveitarfélagsins.
Samþykkt var að nöfnin Malarbraut, Holtabraut og Vallarbraut verði notuð hér eftir en tillöguna átti Ágúst Guðmundsson í Brautarholti.
„Ágúst á ómældan heiður skilinn af komandi kynslóðum,“ segir í bókun sveitarstjórnar.