Í síðustu viku endurnýjuðu Skógrækt ríkisins og Þjórsárskóli eldri samstarfssamning frá 2009 um þróun skógarfræðslu skólastarfi Þjórsárskóla til næstu þriggja ára eða til ársins 2017.
Grænfáni Landverndar var afhentur í sjötta skipti af þessu tilefni en Þjórsárskóli er annar tveggja grunnskóla sem hafa fengið Grænfánann sex sinnum. Aðeins einn skóli hefur fengið Grænfánann sjö sinnum.
Gerður Magnúsdóttir, verkefnisstjóri Skóla á grænni grein hjá Landvernd, afhenti Þjórsárskóla Grænfánann. Hreinn Óskarsson skógarvörður skrifaði undir samninginn fyrir hönd Skógræktarinnar og Bolette Höeg Koch skólastjóri f.h. skólans.
Frá árinu 2009 hefur margt verið gert í skógartengdu útinámi í Þjórsárdalsskógi en einnig á lóð skólans og næsta nágrenni. Þróuð hafa verið verkefni sem tengjast ólíkum námsgreinum og samþættum viðfangsefnum. Farnar eru tíðar og reglubundnar ferðir í skóginn þar sem allir nemendur og starfsfólk fara saman og einnig ferðir þar sem foreldrum er boðið að taka þátt, s.s. á aðventunni.
Á heimasíðu Skógræktarinnar kemur fram að í nýja samningnum er ætlunin að komast lengra í þróunarstarfinu og búa til „skógarnámskrá“ sem tengist öllum námsgreinum í samþættu skógarnámi og efla um leið einstaklingsmiðað nám og fjölbreytta kennsluhætti, þróa matsaðferðir og skógartengd viðfangsefni sem tengjast grunnþáttum menntunar s.s. lýðræði, sjálfbærni, sköpun, læsi, jafnrétti, heilbrigði og mannréttindum.
Fljótlega verður foreldrum barna í Þjórsárskóla boðið á fjölbreytt skógarnytjanámskeið þar sem lögð verður áhersla á tálgutækni, ferskviðarnytjar og skógarhirðu.