Góð samvinna var á milli kjörinna fulltrúa í Rangárþingi ytra við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árin 2025 til 2028. Áætlunin var samþykkt á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku.
Sveitarstjórn hefur við fjárhagsáætlunargerðina reynt að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf og miða almennt við forsendur kjarasamninga. Þá var tekin ákvörðun um að lækka álagningarhlutfall A-hluta fasteignagjalda úr 0,30 í 0,28, C-hluta fasteignagjalda úr 1,50 í 1,45 og fráveitugjalda úr 0,21 í 0,20 til að koma til móts við fasteignaeigendur vegna hækkunar á fasteignamati.
Varðandi lykiltölur úr fjárhagsáætlun 2025 er gert ráð fyrir að heildartekjur Rangárþings ytra (A og B hluta) árið 2025 nemi tæpum 4,0 milljörðum króna. Rekstrargjöld eru áætluð rúmir 3,3 milljarðar og þar af eru reiknaðar afskriftir 212 milljónir króna. Fjármagnsgjöld eru áætluð 209 milljónir.
Gert er ráð fyrir rúmum 1,3 milljarði króna í fjárfestingar og að skuldaviðmið verði 73,9% og skuldahlutfall 98,5%. Rekstrarniðurstaða er áætluð jákvæð um 242 milljónir króna. Fjárhagsáætlunina má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins.
Áfram er gert ráð fyrir heimgreiðslum og hlutaheimgreiðslum sem valkosti fyrir foreldra barna að tveggja ára aldri og leikskólagjöld eru með þeim lægstu á landinu þrátt fyrir stigskipta gjaldskrá leikskólans til að bregðast við áskorunum á leikskólastiginu.
„Allt þetta gerir Rangárþing ytra að ákjósanlegum stað til að búa á,“ segir Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri. „Á næsta ári verður haldið áfram með byggingu nýs grunn- og leikskóla á Hellu, en það er stærsta framkvæmd sveitarfélagsins frá stofnun þess. Ráðgert er að taka í notkun annan hluta skólahúsnæðis fyrir næsta haust og hefja jafnframt framkvæmdir við þriðja hluta sem mun hýsa nýjan leikskóla. Þá er gert ráð fyrir að nýr gervigrasvöllur verði tekinn í notkun á Hellu haustið 2025. Það er gríðarleg uppbygging í sveitarfélaginu öllu og því mikil tækifæri fram undan á nýju ári,“ segir Jón ennfremur.