Grímuklæddur maður réðst á 13 ára dreng undir Hamrinum í Hveragerði um klukkan fimm í dag og skipaði honum að afhenda sér allt sem hann var með, þá sérstaklega síma.
Maðurinn réðst aftan að drengnum og ýtti honum niður, en drengurinn, sem er stór eftir aldri, náði að snúa sér við og koma sér undan. Hundur drengsins kom þá aðvífandi og glefsaði í manninn sem flúði í kjölfarið af vettvangi. Maðurinn náði því ekki að stela neinu af drengnum.
Mbl.is greinir frá þessu.
Foreldrarnir drengsins höfðu strax samband við lögregluna sem kom og ræddi við drenginn og fékk lýsingar á manninum, en hann var með lambhúshettu yfir andlitinu.