Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra kom í heimsókn í Grunnskólann í Þorlákshöfn á dögunum og kynnti sér flokkunarmál í skólanum ásamt sérstöku verkefni til að minnka matarsóun.
Nemendur í umhverfisnefnd skólans héldu fyrirlestur um umhverfismál skólans en starfsmenn og nemendur skólans hafa náð að minnka matarsóun um helming á einu ári. Eftir fyrirlesturinn afhenti umhverfis- og auðlindaráðherra skólanum viðurkenningu fyrir góðan árangur í baráttunni gegn matarsóun.
Í heimsókninni í Ölfus var ráðherra einnig viðstödd þegar Gunnsteinn R. Ómarsson, bæjarstjóri Ölfuss, Árni Bragason, landgræðslustjóri Landgræðslu Ríkisins og Aðalsteinn Sigurgeirsson, staðgengill skógræktarstjóra Skógræktarinnar undirrituðu samning um uppgræðslu Þorláksskóga í Ölfusi.