Fyrsta embættisverk Guðna Th. Jóhannessonar sem forseta Íslands er heimsókn að Sólheimum í Grímsnesi á morgun, miðvikudag.
Forsetinn nýi og Eliza Jean Reid kona hans eru væntanleg að morgninum og skoða staðinn undir leiðsögn. Snæða þau svo hádegisverð með íbúum og eiga því næst samverustund með fólkinu í kirkjunni á Sólheimum.
„Guðni hafði samband og óskaði eftir því að mega heimsækja okkur sem er auðvitað heiður einn,“ segir Guðmundur Ármann Pétursson, forstöðumaður Sólheima, í samtali við mbl.is.